Lilja Mósesdóttir gefur ekki kost á sér

Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir. Morgunblaðið/Sigurgeir S.

Lilja Mósesdóttir þingmaður hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi við næstu þingkosningar. Hún segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með skort á umburðarlyndi á þingi og í pólitískri umræðu gagnvart óhefðbundnum skoðunum og faglegum lausnum.

Lilja sendi frá sér yfirlýsingu í morgun þar sem fram kemur að það hafi aldrei verið ætlun hennar að gerast stjórnmálamaður. „Miklar undirtektir með málflutningi mínum um fjármálakreppuna og stuðningur við hugmyndir mínar að lausnum hennar varð hins vegar til þess að ég bauð fram krafta mína í síðustu alþingskosningum. 

Ég er afar þakklát fyrir tækifærið sem kjósendur gáfu mér með kjöri mínu til að móta umræðuna og leggja fram lausnir á efnahagsvandanum sem tryggja efnahagslegt sjálfstæði Íslands.“

Hún segir hafa orðið fyrir vonbrigðum með skort á umburðarlyndi á Alþingi og bætir við að persónulegur metnaður hafi oftar en ekki staðið í vegi fyrir samstöðu og samvinnu meðal pólitískra samherja um framgang mikilvægra mála á þingi.

„Síðastliðið haust ákvað ég að gefa þjóðinni áframhaldandi tækifæri til að styðja mig til setu á Alþingi. Sá stuðningur sem ég þurfti kom ekki og hef ég því ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri. Ég mun því að afloknum alþingiskosningum snúa mér aftur að sérfræðistörfum innan eða utan háskólageirans. Á þeim vettvangi mun fagþekking mín nýtast betur en í umhverfi þar sem tillögur fá ekki faglega eða efnislega meðferð ógni þær á einhvern hátt flokkspólitískum hagsmunum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert