30-40 metrar á sekúndu í hviðum

Afar leiðinlegt veður er víða á landinu
Afar leiðinlegt veður er víða á landinu mbl.is/Rax

Skil mjög djúprar lægðar fara norður í kvöld og nótt með vaxandi vindi og austan og norðaustan stormi. Snjókoma og skafrenningur verður á fjallvegum um norðan- og norðaustanvert land, 18-23 m/s og sums staðar með mjög takmörkuðu skyggni.

Í byggð hlánar og með slyddu og rigningu og einnig hlánar upp fyrir frostmark á fjallvegum suðvestanlands. Reikna má með vindhviðum 30-40 m/s undir Eyjafjöllum, á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar til í nótt, samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Vetrarfærð á Vesturlandi

Það er hálka á Hellisheiði og í Þrengslum en á Suðurlandi eru víða hálkublettir eða hálka og sumstaðar skafrenningur. Þæfingsfærð er á Mosfellsheiði og Kjósarskarði.

Vetrarfærð er einnig á Vesturlandi, víðast hvar nokkur hálka eða snjóþekja. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Fróðárheiði.

Versnandi veður er á Vestfjörðum og víða orðið mjög hvasst. Óveður er á fjallvegum á sunnanverðum kjálkanum og ekki ferðaveður, alla vega ekki fyrir minni bíla. Þæfingsfærð er á Klettshálsi en einnig á leiðinni norður í Árneshrepp.

Óveður á Vatnsskarði

Á Norðurlandi er hálka á flestum vegum og víða skafrenningur. Óveður er á Vatnsskarði og eins er lítið skyggni á Öxnadalsheiðinni. Hólasandur er ófær. Þungfært er á Mývatnsöræfum og ekkert ferðaveður.

Hálka eða hálkublettir eru á Austurlandi og víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á Möðrudalsöræfum og Fjarðarheiði. Hálka og éljagangur er á Oddsskarði. Vegurinn með suðausturströndinni er að mestu auður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert