Steingrímur spyr um kostnað við fjölgun ráðherra

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG. mbl.is/Styrmir Kári

Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi sem beint er til Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, um kostnað við fjölgun ráðherra um tvo.

Í fyrsta lagi spyr Steingrímur Bjarna hver sé áætlaður árlegur viðbótarkostnaður ríkissjóðs við að fjölga ráðherrum um tvo, þ.e.:

  • heildarlaunakostnaður tveggja ráðherra,
  • heildarlaunakostnaður aðstoðarmanna þeirra,
  • heildarlaunakostnaður ritara þeirra,
  • heildarlaunakostnaður bílstjóra þeirra,
  • heildarlaunakostnaður ráðgjafa eða annarra viðbótarstarfsmanna,
  • viðbótarferðakostnaður tveggja ráðherra og föruneyta þeirra, þ.m.t. dagpeningar,
  • aukinn húsnæðiskostnaður, þ.m.t. kostnaður vegna breytinga á húsnæði,
  • annar mögulegur viðbótarkostnaður, ótilgreint?

Í öðru lagi vill Steingrímur fá að vita hver sé þar með áætlaður viðbótarkostnaður á kjörtímabilinu í heild haldist skipan mála óbreytt í fjögur ár.

Loks spyr Steingrímur, hver yrði viðbótarkostnaður í heild vegna biðlauna ef stjórnarskipti yrðu á kjörtímabilinu eða í lok þess og viðkomandi ráðherrar og þeir starfsmenn sem þeir hafa ráðið sérstaklega hyrfu úr starfi og þægju biðlaun.

Ráðherrum fjölgaði úr 8 í 9 þegar ný ríkisstjórn tók við í maí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert