Andlát: Hugo Þórisson

Hugo Þórisson
Hugo Þórisson

Hugo Þórisson, sálfræðingur, er látinn 64 ára að aldri. Hann lést þann 15. september síðastliðinn en banamein hans var krabbamein. Hugo lætur eftir sig eiginkonu og fimm uppkomin börn.

Hugo stofnaði fyrirtækið Hollráð Hugos og gaf einnig út bókina Hollráð Hugos. Þá hélt hann einnig úti facebook-síðu undir sama nafni og greindu börn hans frá andláti Hugos þar í kvöld.

Hugo hafði glímt við krabbamein frá árinu 2011. Auk þess að starfa að málefnum barna og foreldra í rúm þrjátíu ár hélt hann fjölmarga vinsæla fyrirlestra og námskeið sem miðuðu að því að fræða foreldra um samskipti þeirra við börnin sín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert