Óvarlega farið með mikilvægt mál

AFP

Stjórn Félags atvinnurekenda mótmælir harðlega áformum stjórnarflokkanna um að slíta aðildarviðræðum við ESB. „Farið er afar óvarlega með mikilvægt mál,“ segir í yfirlýsingu frá stjórninni.

Stjórn Félags atvinnurekenda telur ákvörðun stjórnarflokkanna um að slíta viðræðum við Evrópusambandið vera misráðna og mótmælir henni harðlega. „Ákvörðunin er skaðleg fyrir íslensk fyrirtæki og lokar augljósum valkostum í efnahagsmálum á tímapunkti þar sem engin þörf er á slíkum vatnaskilum,“ segir í yfirlýsingunni.

Ákvörðunin fækkar mögulegum valkostum Íslands í peningamálum, sem er eitt mikilvægasta hagsmunamál fyrirtækja og heimila til lengri tíma. „Engin skýr stefnumörkun liggur fyrir um framtíðarskipan peningamála og því lítil skynsemi í að útiloka augljósa valkosti að svo komnu máli.“

Stjórn FA tekur undir það sjónarmið að aðildarviðræður eigi að hafa sinn gang, enda er það eina leiðin til að fá á borðið upplýsingar til að greiða atkvæði um á málefnalegum grunni. Um endanlegan samning við ESB á þjóðin að sjálfsögðu að greiða atkvæði. Þannig getur hún ráðið úrslitum - af eða á.

Í skoðanakönnun meðal félagsmanna FA sem framkvæmd var í lok janúar sl. kom m.a. fram að 60,7% félagsmanna vildu halda áfram aðildarviðræðum og 52,5% töldu að íslenska krónan væri ekki framtíðargjaldmiðill fyrir Ísland.

Félag atvinnurekenda er einn fjögurra aðila sem standa að gerð skýrslu um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Alþjóðamálastofnun HÍ sér um gerð skýrslunnar sem væntanleg er í apríl. Hún verður án vafa mikilvægt innlegg í umræðuna um þessi mál eins og nýútkomin skýrsla Hagfræðistofnunar.

„Stjórn FA skorar á stjórnvöld að endurskoða afstöðu sína. Það á ekki að fara jafn óvarlega með mikilvægt mál og raun ber vitni. Sýnum skynsemi!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert