Skýrsla um sparisjóði innan mánaðar

Jim Smart

Miðað við upplýsingar frá rannsóknarnefnd sem falið var semja skýrslu um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna er fastlega gert ráð fyrir að nefndin skili Alþingi skýrslunni eigi síðar en innan mánaðar.

Þetta kemur fram í svari forseta Alþingis við skriflegri fyrirspurn. Þar segir að Alþingi hafi 10. júní 2011 samþykkt þingsályktun um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. Þar hafi verið gert ráð fyrir að nefndin skilaði Alþingi skýrslu um rannsóknina eigi síðar en 1. júní 2012. Nefndin tók til starfa 27. september 2011 og hefur því verið að störfum í tæp tvö og hálft ár.

„Eftir að nefndin hóf störf kom skýrt í ljós að sú verkefnaskrá sem hafði falist í ályktun Alþingis var miklu umfangsmeiri, flóknari og tímafrekari en talið hafði verið í upphafi og krafðist mikillar aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. Mun meiri kostnaður varð því af starfi nefndarinnar en áætlað hafði verið.

Í þessu sambandi er líka rétt að hafa í huga að rannsóknin tekur til fjórtán sparisjóða og eins stórs sparisjóðsbanka og umfang fjögurra stærstu sparisjóðanna var svipað og Landsbanka Íslands fimm árum fyrir bankahrunið 2008. Því tók verulegan tíma að skipuleggja umfang rannsóknarvinnunnar og ráða sérfræðinga til starfa. Ljóst er að nefndinni voru sett of þröng tímamörk í ályktun Alþingis og því hafa væntingar um lengd rannsóknarinnar reynst óraunhæfar,“ segir í svarinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert