Ók ölvaður á móti umferð

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan hálffjögur í nótt um smájeppa sem æki á móti umferð á Hringbraut við Sæmundargötu. Þegar lögregla kom á vettvang stóð ökumaður bifreiðarinnar við hlið hennar og var hann greinilega ölvaður. 

Aðspurður sagðist ökumaðurinn vera á leið til Hafnarfjarðar en bifreiðin hafði snúist í nokkra hringi, skollið á kantsteinum og var því óökufær. Ökumaðurinn var vistaður í fangaklefa og verður hann yfirheyrður í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert