Stærsta ferðasumar sögunnar í hættu

Icelandair
Icelandair Sigurður Bogi Sævarsson

„Hver dagur veldur stórtjóni hvort sem litið er til flugfélagsins, ferðaþjónustunnar, útflutningsfyrirtækja eða orðspors landsins almennt,“ segir Samtök atvinnulífsins um verkfallsaðgerðir Félags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Icelandair.

Samtökin segja að aðgerðirnar nái til 600 flugferða og 100 þúsund farþega félagsins þá níu daga sem tímabundin vinnustöðvun nær til á tímabilinu 9. maí til 3. júní. „Á þessu tímabili er hlutdeild Icelandair í flugi til og frá landinu 70% auk þess sem flug til Bandaríkjanna mun nánast leggjast af. Röskun á samgöngum til og frá landinu verður mjög mikil.  Ætla má að þjóðfélagið verði af einum milljarði króna fyrir hvern dag sem vinnustöðvun stendur yfir og er þá ekki tekið tillit til alvarlegra langtímaafleiðinga sem af kunna að hljótast.“

Þá segja samtökin að stærsta ferðasumar sögunnar sé hættu. „Samningar liggja fyrir hjá 98% starfsfólks á almennum vinnumarkaði en þeir sem eftir eru taka einkum til flugstéttanna. Meirihluti starfsmanna Icelandair Group hefur þegar samið um laun í takti við almennu samningana en kröfur flugmanna eru úr öllum takti við þá. Markmiðið er að koma á stöðugu verðlagi á Íslandi og auka kaupmátt fólks til lengri tíma en það verður ekki gert með því að hækka launakostnað fyrirtækja um tugi prósenta og tilheyrandi verðbólgu.

Það er óásættanlegt að svo lítill hópur geti raskað stórkostlega lífsnauðsynlegum samgöngum við Ísland með miklum efnahagslegum skaða. Því er mikilvægt er að samkomulag náist í deilunni sem fyrst svo Íslendingar geti flogið til og frá landinu samkvæmt áætlunum og vaxandi ferðaþjónusta jafnframt tekið á móti erlendum ferðamönnum sem vilja kynna sér land og þjóð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert