34,5% styðja ríkisstjórnina

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina, stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks,  á tímabilinu 6. til 11. maí 2014. Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 34,5% en mældist 35,8% í síðustu mælingu (sem lauk 21. apríl) og 38,7% í lok mars (lauk 1. apríl).

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 22,1%, borið saman við 24,6% í könnun frá apríl. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 19,4%, borið saman við 16,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 16,4%, borið saman við 15,6% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, borið saman við 11,8% í síðustu könnun. Vinstri-græn mældust nú með 11,6% fylgi, borið saman við 12,5% í síðustu könnun. Píratar mældust nú með 9,6% fylgi, borið saman við 11,1% fylgi í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 3%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,5% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (4,6%), myndu skila auðu (6,4%), myndu ekki kjósa (1,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,7%). 

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 86,3% afstöðu til spurningarinnar.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 963 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 6. til 11. maí 2014

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert