Fundað fram yfir miðnætti

Þingfundi var slitið fjórar mínútur yfir miðnætti í nótt en þá stóð enn yfir önnur umræða um frumvarp ríkisstjórnarinnar um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.

Þingfundur hefst að nýju klukkan 11.30 í dag en fundur í atvinnuveganefnd hefst klukkan 8 og eru nokkrir nefndarfundir á dagskrá í dag áður en þingfundur hefst.

Samkomulag er um þinglok þann 16. maí nk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert