Landsnet sækir um framkvæmdaleyfi

Fyrirhuguð Suðurnesjalína 2 á að liggja á milli Hafnarfjarðar og …
Fyrirhuguð Suðurnesjalína 2 á að liggja á milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar. Morgunblaðið/Kristinn

Landsnet hefur sótt um framkvæmdaleyfi til sveitarfélaganna Grindavíkur, Hafnarfjarðar, Reykjanesbæjar og Voga vegna Suðurnesjalínu 2. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist um mitt þetta ár og þeim ljúki í árslok 2015, fyrir utan frágangsvinnu sem verði lokið um mitt ár 2016.

Þetta kemur fram á vefsvæði Landsnets. Eins og greint var frá á mbl.is fyrr í þessum mánuði telur Landsnet að þörf sé á ann­arri teng­ingu fyr­ir Suður­nes­in óháð sér­stök­um áform­um um at­vinnu­upp­bygg­ingu og því hafi verið ákveðið að ráðast í bygg­ingu Suður­nesjalínu 2.

„Orkustofnun hefur veitt Landsneti leyfi til að reisa og reka flutningsvirkið Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta (kV) háspennulínu frá Hamranesi í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis. Telur Landsnet nauðsynlegt að hefja framkvæmdina sem fyrst þar sem þörfin á Suðurnesjalínu 2 sé aðkallandi og er óskað eftir því að sveitarfélögin fjögur veiti umbeðið framkvæmdaleyfi, í samræmi við gildandi aðalskipulag, við fyrsta tækifæri,“ segir í frétt á vef Landsnets.

Sjá nánar á www.sudvesturlinur.is

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert