Þingfundur stendur enn yfir

Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól Alþingis í kvöld.
Steingrímur J. Sigfússon í ræðustól Alþingis í kvöld. Skjáskot/Alþingi

Þingfundur hefur staðið yfir í tólf klukkustundir eða frá klukkan 11.32 í morgun. Eins og í gær þá er rætt um frumvörp ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu verðtryggðra húsnæðislána og séreignasparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.

Enn eru tíu þingmenn á mælendaskrá og því verður að teljast ólíklegt að umræðan klárist í nótt. Þingfundur er boðaður að nýju í fyrramálið klukkan 9.30 og heldur þá umræðan áfram.

Hér má horfa á beina útsendingu frá þinginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert