Tollkvótinn opinn síðan í febrúar

innflytjendur geta flutt inn nautakjöt gegn greiðslu á ákveðnum tolli, …
innflytjendur geta flutt inn nautakjöt gegn greiðslu á ákveðnum tolli, sem er 45% af þeim magntolli sem leggjast myndi á kjötið ef tollkvótinn væri ekki opinn. AFP

Vegna umræðu um innflutning á nautakjöti vill atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið taka fram að tollkvóti vegna innflutnings á nautakjöti hefur verið opinn síðan 28. febrúar síðastliðinn.

Það þýðir að innflytjendur geta flutt inn nautakjöt gegn greiðslu á ákveðnum tolli, sem er 45% af þeim magntolli sem leggjast myndi á kjötið ef tollkvótinn væri ekki opinn. Auk þess legðist þá á 30% verðtollur, að því er segir í frétt á vef ráðuneytisins.

„Sem dæmi má nefna að tollur á hakkefni er 270 krónur sem er 45% af leyfilegum magntolli. Væri tollkvótinn ekki opinn myndi tollurinn verða 30% af innflutningsverði auk 599 króna. Þegar tollkvóti er opinn, eins og núna, hefur verðhækkun á innlendu nautakjöti engin áhrif á innflutningsverðið,“ segir jafnframt í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert