Margir yfirheyrðir í líkamsárásarmáli

Frá Hvammstanga.
Frá Hvammstanga. www.mats.is

Rannsókn lögreglunnar á Akureyri á líkamsárás sem varð á Hvammstanga á laugardaginn er í fullum gangi. Margir hafa verið yfirheyrðir í tengslum við málið að sögn lögreglu - bæði vitni og fjórir karlmenn sem eru grunaðir um árásina.

Á mánudag úrskurðaði Héraðsdómur Norðurlands eystra fjórmenningarnir í gæsluvarðhald til næstkomandi sunnudags á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Fleiri hafa ekki verið handteknir í tengslum við rannsóknina.

Rannsókninni er enn á frumstigi en lögreglan telur sig hafa náð ágætlega utan um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert