Skiptibókamarkaður Griffils í Laugardalshöll

Griffill stóð í ljósum logum er eldur kviknaði í Skeifunni …
Griffill stóð í ljósum logum er eldur kviknaði í Skeifunni 11. mbl.is/Jakob Fannar

Ákveðið hefur verið að opna skóla- og skiptabókamarkað Griffills í Laugardalshöll á morgun.

Móttaka skiptibóka hefst þá þegar og verður tekið á móti skiptibókum fram að verslunarmannahelgi.

Tjón Griffils í brunanum í Skeifunni var gríðarlegt þar sem allt brann sem brunnið gat, segir í fréttatilkynningu frá Griffli.  

„Við skoðuðum málið og niðurstaðan var sú að við opnum skólamarkaðinn okkar í Laugardalshöllinni og hefjumst handa við móttöku notaðra skólabóka strax á morgun,“ er haft eftir Ingþóri Ásgeirssyni hjá Griffli í fréttatilkynningu.

Móttaka skiptibóka hefst á morgun klukkan 13.00 og eftir verslunarmannahelgi hefst sala bóka og annarra vara sem skólafólk þarf fyrir veturinn.

Hægt verður að nálgast lista yfir skiptibækur á heimasíðu Griffils og á Facebook. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert