Uppbygging mislangt á veg komin

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er meðal annars ánægð …
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er meðal annars ánægð með breytingar sem gerðar hafa verið við Gullfoss. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, heimsótti nokkra ferðamannastaði á Suðurlandi í gær en markmiðið var að fylgja eftir sérstakri úthlutun ríkisstjórnarinnar í vor, 380 milljónum. Með fjármagninu átti að taka á bráðum vanda sem var til staðar eða var yfirvofandi á fjölsóttum ferðamannastöðum hér á landi. 

Í heildina var ráðist í 88 verkefni til uppbyggingar og verndaraðgerða í sumar í kjölfar úthlutunarinnar. Fénu var úthlutað úr Framkvæmdastjóði ferðamannastaða og gaf atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið út reglugerð vegna úthlutunarinnar.

Hópurinn heimsótti meðal annars Þingvelli, Gullfoss, Reykjadal við Hveragerði, Seljalandsfoss, Urriðafoss, Laugarvatn, Geysi, Skógafoss og Fossabrekku. Staðirnir fengu allir fjármagn úr sérstöku úthlutuninni. 

Vildi vita hvernig og hvort fjármagnið væri nýtt

Um er að ræða framkvæmdir á gönguleiðum eða göngustígum sem lágu eða liggja undir skemmdum. Víða þurfti einnig að koma upp öryggisgrindverkum og pöllum við fossa og hveri til að tryggja öryggi ferðamanna en slysahætta á mörgum ferðamannastaðanna var talin veruleg.

Í heimsóknum gærdagsins óskaði Ragnheiður Elín eftir upplýsingum frá umsjónarmönnum staðanna, en þeir eru ýmist í ríkiseign eða í eigu sveitarfélaga. Ráðherra vildi vita hvernig og hvort verið að nýta fjármagnið sem úthlutað var til verkefnanna. Ekki var krafist mótframlags vegna framkvæmdanna.

Verkin mega ekki dragast á langinn

Ragnheiður Elín segir í samtali við mbl.is að framkvæmdirnar á stöðunum sem hún heimsótti í gær séu mislangt á veg komnar. Sumum er þegar lokið, aðrar standa yfir en einhverjar eru enn ekki hafnar.

Ráðherra bendir á að úthlutunin hafi verið sérstök að því leyti að framkvæmdirnar hafi þurft að fara fljótt af stað og þeim hafi þurft að ljúka á skömmum tíma. Aldrei hafi meira fjármagni verið úthlutað á einu ári til uppbyggingar á ferðamannastöðum og því sé mikilvægt að sjá fjármununum sé vel farið.

Hún segist hafa skilning á að vanda þurfi til verks og undirbúa, en þó megi verkið ekki dragast á langinn.

Uppbygging og viðhald strandar ekki á fjármagni

Sem dæmi um breytingar hafa verið gerðar má nefna Gullfoss en þar er búið að koma fyrir palli og gera breytingar sem tryggja betra flæði við fossinn. Ragnheiður Elín segir að margir hafi verið við fossinn í gær en umferðin gekk hratt og vel.

Þá er búið að bæta stíga við Urriðafoss, sem og aðgengi fatlaðra. Með nýja stígnum fá ferðamenn betra sjónarhorn á fossinn og eykur það upplifunina, að sögn Ragnheiðar Elínar. 

Ragnheiður Elín segir að eftir heimsóknir gærdagsins sé ljóst að uppbygging og viðhald á stöðunum strandar ekki á fjárveitingum heldur frekar á skipulagsmálum og undirbúningi sveitarfélaga og þeirra sem hafa umsjón með stöðunum.

Ráðherra mun heimsækja fleiri ferðamannastaði í mánuðinum en stefnt er á að sækja Vestfirði heim í næstu viku.

Frétt mbl.is: Verkefni á ferðamannastöðum í sumar

Frétt mbl.is: Fimmtán milljónir til Geysis

Við Seljalandsfoss.
Við Seljalandsfoss. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert