Lokað í 25 km fjarlægð frá gosi

Holuhraun í gær.
Holuhraun í gær. Árni Sæberg

Ríkislögreglustjóri og lögreglustjórarnir á Húsavík, Seyðisfirði og Hvolsvelli, í samvinnu við fulltrúa Vatnajökulsþjóðgarðs hafa endurskilgreint hættu- og lokunarsvæði norðan Vatnajökuls vegna umbrotanna í Bárðarbungu og Holuhrauni. Einnig hafa þær reglur sem gilda um aðgang að lokaða svæðinu verið endurskilgreindar. Svæðið er enn lokað öllum nema þeim sem hafa til þess sérstök leyfi og hafa þær reglur verið hertar í ljósi nýs hættumats Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands.

Á grundvelli hættumatsins, þar sem horft er til gasmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni og mögulegu sprengigosi með gjóskufalli og jökulhlaupum frá Dyngjujökli eða Bárðarbungu, hefur almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ákveðið eftirfarandi skilgreiningar á hættu- og lokunarsvæðum.

Lokunarsvæði

Vegna gasmengunar frá eldgosinu í Holuhrauni skal umferð takmörkuð í 25 km fjarlægð frá aðal gosgígnum. Samkvæmt hættumati Veðurstofunnar er um 90% líkur að innan þess svæðis geti verið varasamar eða hættulegar lofttegundir. Auk þess skal, vegna mögulegs jökulhaups, takmarka umferð um slóðir sem liggja í flóðafarvegi Jökulsár á Fjöllum. Hætta er á töluverðu öskufalli innan þessa svæðis ef eldgosið nær undir Dyngjujökul ( >10 cm). Nýjar reglur um aðgang að svæðinu taka gildi samhliða tilkynningu um endurskilgreint lokunarsvæði. 

Hættusvæði

Hættusvæði er skilgreint sem það svæði þar sem um helmingslíkur eru á að óholl loftgæði geti myndast, eða í um 60 km fjarlægð frá gosstöðvunum í Holuhrauni. Auk þess eru flóðfarvegir eftirtalinna vatnsfalla á hálendi innan svæðisins: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Sveðja, Sylgja og Tungnaá.

Mestar líkur eru taldar á að hlaupvatn vegna eldgoss í Bárðarbungu fari í Jökulsá á Fjöllum, en ekki er útilokað að það fari til vesturs. Innan hættusvæðisins er hætta á að lenda í miklu ( >5 cm) öskufalli ef eldgos verður undir jökli. Umferð um hættusvæðið er ekki bönnuð, en fólk er hvatt til þess að sýna sérstaka árvekni og fylgjast vel með tilkynningum sem kunna berast í gegnum farsíma eða útvarp.

Í tilkynningu frá almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra er minnt á að gott sé að gefa upp ferðaáætlun og skilja eftir hjá aðilum sem geta gefið upplýsingar til yfirvalda ef breytingar verða á eldvirkninni og vá vofir yfir. Því nær sem farið er lokunarsvæði, því meiri líkur eru á að lenda í mikilli gasmengun og öskufalli ef eldgos nær undir Dyngjujökul. Spár um hvar gasmengunar er að vænta eru birtar á vef Veðurstofu Íslands. www.vedur.is

Gasmengun - er hægt að verjast með gasgrímum og sérstökum mælum, sem nema brennisteinsdíoxíð (SO2) og geta gefið viðvaranir. Lendi fólk í miklum gastoppum er það hvatt til þess að leit skjóls í fjallaskála eða inni í bifreið.

Gjóskufall - getur hafist fyrirvaralaust og erfitt eða ógerlegt getur verið að rata eða komast leiðar sinnar í miklu gjóskufalli. Ef fólk er utan svæða þar sem flóð eru talin líklega er það hvatt til þess að halda kyrru fyrir og láta vita af sér. Rykgrímur og þétt gleraugu geta hjálpað til. Eldingar geta fylgt gjóskumekki.

Jökulhlaup – Ef tilkynning um eldgos í jökli berst, er mikilvægt að forða sér án tafar af flóðasvæðum. Varist að þvera flóðasvæði. Aflið upplýsinga eins og hægt er um hvar eldgosið er og þá hvort þið eruð á öruggu svæði.

Ferðfólk er beðið að hafa sérstakar gætur á öllum breytingum eða óvenjulegum atburðum í náttúrunni: Jarðskjálftum, breytingum á vatnsföllum, drunum, sprungum í jörðu eða á yfirborði jökla eða öðru sem kann að vekja eftirtekt. Mikilvægt er að tilkynna allt slíkt til Veðurstofu Íslands.

Útmörk hættusvæðisins eru birt meðfylgjandi korti.

Útmörk hættusvæðisins.
Útmörk hættusvæðisins.
Á þessu korti má sjá gráður og mínútur hnitanna fyrir …
Á þessu korti má sjá gráður og mínútur hnitanna fyrir lokunarsvæðið.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert