Maður sem fluttur var á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir líkamsárás á sunnudagskvöld er enn á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn læknis á gjörgæslu er manninum enn haldið sofandi og er ástand hans óbreytt.
Talið er að ráðist hafi verið á manninn í heimahúsi á Hverfisgötu á sunnudagskvöld.
Fjórir menn voru handteknir í kjölfar árásarinnar. Tveimur þeirra hefur verið sleppt en tveir þeirra sæta nú gæsluvarðhaldi til 8. desember.
Í gæsluvarðhald vegna hnífstungu