Flugmenn semja við Icelandair

Icelandair
Icelandair

Icelandair Group hf., Icelandair ehf. og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FIA) hafa undirritað kjarasamning sem gildir til 30. september 2017. Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FÍA.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningu frá félaginu: „Þessi nýi þriggja ára samningur við FÍA er, ef hann verður samþykktur, mikilvægt skref fyrir félagið. Með stöðugleika gefast tækifæri til áframhaldandi innri vaxtar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert