Sveitarfélögin hvað grimmust

Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Því miður er það svo að sveitarfélögin eru hvað grimmust í því að senda reikninga sem ekki hafa verið greiddir í innheimtu, jafnvel stuttu eftir gjalddaga. Með þessu erum við að setja unga fólkið okkar, sem er að berjast við að ná endum saman um hver mánaðamót, inn í vítahring sem það síðan á mjög erfitt með að komast út úr.“

Þetta sagði Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á Alþingi í dag þar sem hún gerði að umtalsefni sínu þá stöðu sem bæði ungt fólk og fólk á miðjum aldri, sem stæði ekki styrkum fótum fjárhagslega, stæði frammi fyrir í hverjum mánuði. „Þetta fólk hefur oft ekki borð fyrir báru í sínum fjármálum og þarf stundum að ýta reikningum á undan sér. Það sem gerist við það er að þessir reikningar hækka í langflestum tilfellum, hækka um tíu og jafnvel tugi þúsunda eftir einn til tvo mánuði.“

Valgerður sagði umhugsunarvert hvort þar væri á ferðinni rétt stefna. „Hvort það er eðlilegt að reikningar sem ekki eru greiddir á gjalddaga séu komnir í innheimtu til innheimtufyrirtækja kannski hálfum mánuði, í mesta lagi mánuði eftir að gjalddagi var.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert