Bíll á hliðina á Suðurlandsbraut

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom til hjálpar þegar eldri kona velti bíl sínum á Suðurlandsbraut um kl. 15.30 í dag. Konan fékk aðstoð við að komast úr bílnum og var flutt á slysadeild til aðhlynningar. Bílnum var komið á réttan kjöl og hann dreginn af vettvangi.

Slökkviliðið var einnig kallað út vegna bruna á Kársnesbraut í Kópavogi í dag, en í ljós kom að aðstoð þess var ekki þörf.

Mikið annríki hefur verið í sjúkraflutningum hjá slökkviliðinu í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert