Samskipti samræmdust ekki reglum

Stefán Eiríksson og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Stefán Eiríksson og Hanna Birna Kristjánsdóttir.

„Í samræmi við framangreint er það niðurstaða mín að efni samskipta innanríkisráðherra við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki samrýmst þeim reglum sem ráðherra bar að virða um sjálfstæði og hlutlægni lögreglunnar,“ segir í áliti umboðsmanns Alþingis, á samskiptum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, fyrrverandi innanríkisráðherra, og Stefáns Eiríkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, vegna lekamálsins. Niðurstöður umboðsmanns eru nú kynntar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis.

Í niðurstöðukafla álitsins, sem birt hefur verið á heimasíðu umboðsmanns, segir umboðsmaður, Tryggvi Gunnarsson, að fyrrverandi innanríkisráðherra hafi sett fram við lögreglustjórann „athugasemdir og gagnrýni á rannsókn sakamáls sem voru verulega umfram það sem gat samrýmst því að um væri að ræða efnislegar fyrirspurnir til að greiða fyrir rannsókn málsins eða meðferð gagna frá ráðuneytinu.“

Fólu í sér ítrekaða gagnrýni

Svo segir í niðurstöðum umboðsmanns: 

„Af efni samskiptanna, samkvæmt lýsingu lögreglustjóra, tel ég ljóst að þau hafi falið í sér ítrekaða gagnrýni og beinar athugasemdir ráðherra við það hvernig embætti lögreglustjórans stóð að rannsókninni, vinnubrögð lögreglunnar og einstakar rannsóknarathafnir. Ég lít svo á að þarna hafi verið um að ræða harða gagnrýni ráðherra á ákvarðanir og störf lögreglunnar í þessu máli. Í samræmi við framangreint er það niðurstaða mín að efni samskipta innanríkisráðherra við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki samrýmst þeim reglum sem ráðherra bar að virða um sjálfstæði og hlutlægni lögreglunnar. Samskiptin voru því ósamrýmanleg stöðu ráðherra sem yfirstjórnanda lögreglunnar.“

Einnig telur umboðsmaður að tengsl ráðherra og hagsmunir af framvindu rannsóknar sakamálsins hafi verið slíkir að „samskiptin, miðað við efni þeirra, hafi farið í bága við hina óskráðu meginreglu um sérstakt hæfi í stjórnsýslunni. Í samræmi við framangreindar niðurstöður get ég ekki fallist á að það sem kemur fram í bréfi fyrrverandi innanríkisráðherra til mín, dags. 8. janúar 2015, um að orðin „fyllilega“ og „nægilega“ eigi hér við. Þeim reglum sem um ræðir var einfaldlega ekki fylgt.“

Það er einnig afstaða umboðsmanns að í ákveðnum tilvikum hafi þess ekki verið nægjanlega gætt af ráðherra að virða þá stöðu sem lögreglustjórinn var í og þau viðmið um háttsemi sem ráðherra ber að fylgja í samskiptum við forstöðumann undirstofnunar. Ráðherra hefur beðist afsökunar á þessum samskiptum og framgöngu sinni í þeim.

Afskipti aðstoðarmannsins ekki í samræmi við reglur

„Þá er það niðurstaða mín að samskipti aðstoðarmanna ráðherra, sem höfðu á þeim tíma réttarstöðu sakbornings, við lögreglustjórann þar sem þeir óskuðu eftir að hann brygðist við tiltekinni frétt hafi ekki verið í samræmi við hina óskráðu hæfisreglu stjórnsýsluréttarins.

„Ég tel að það geti hvorki samrýmst sjónarmiðum um gagnsæja stjórnsýslu né lagareglum sem eftirlit umboðsmanns Alþingis byggist á að ráðherra eða lögmaður á hans vegum hafi beint samband við þann opinbera starfsmann sem veitt hefur umboðsmanni upplýsingar og krefji hann skýringar á því sem hann hefur greint umboðsmanni frá. Eftir að umboðsmaður hefur tekið mál til skoðunar eiga samskiptin að fara fram milli umboðsmanns og stjórnvaldsins. Ég vænti þess að umfjöllun mín verði stjórnvöldum almennt í framtíðinni tilefni til að gæta að þessum atriðum í störfum sínum.“

Því er það niðurstaða umboðsmanns að Hanna Birna hafi ekki sýnt fram á að hún hafi fylgt 20. gr. laga nr. 115/2011, um Stjórnarráð Íslands, þar sem kveðið er á um skyldu ráðherra til að leita sér ráðgjafar. „Ég beini þeim tilmælum til þess ráðherra sem nú fer með innanríkisráðuneytið að gætt verði að þessu atriði í starfi ráðuneytisins framvegis. “

Umboðsmaður hefur enn fremur með bréfi komið tilteknum ábendingum á framfæri við forsætisráðherra um framkvæmd og grundvöll siðareglna fyrir ráðherra, reglur um skráningu formlegra samskipta og funda og hlutverk og stöðu aðstoðarmanna ráðherra. Þær lúta einkum að því að þörf sé á að kanna betur almenna framkvæmd þessara reglna og eftir atvikum hvort þær megi gera skýrari.

Torveldaði rannsókn lögreglunnar með afskipum

„Með vísan til þess eftirlitshlutverks sem umboðsmanni Alþingis er falið með stjórnsýslunni legg ég ríka áherslu á að afskipti ráðherra sem fór með yfirstjórn lögreglunnar af lögreglurannsókn sakamáls, sem tengdist honum sjálfum á tiltekinn hátt og sú framganga sem lögreglustjórinn lýsir, eru ekki aðeins andstæð þeim reglum sem fjallað er um í álitinu heldur eru þau einnig til þess fallin að gera þeim sem rannsaka sakamál óhægt um vik að rækja það starf sitt í samræmi við gildandi reglur. Þær reglur miða að því að með sakamálarannsókn sé hið sanna og rétta leitt í ljós og m.a. lagður grundvöllur að ákvörðun handhafa ákæruvalds um saksókn, sbr. 53. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála. Þá eru slík afskipti almennt til þess fallin að skapa tortryggni um aðkomu ráðherra að lögreglurannsóknum, óháð því hvort það hafi orðið reyndin í þessu tiltekna máli.“

Nauðsyn réttra upplýsinga

Umboðsmaður segir að í ljósi svara ráðherra til sín vegna athugunar sinnar á þessu máli telji hann tilefni til að minna á að „réttar upplýsingar um málsatvik eru í senn forsenda þess að umboðsmaður geti lagt mat á lögmæti ákvarðana og athafna stjórnvalds miðað við raunveruleg málsatvik og veitt Alþingi réttar upplýsingar um starfshætti stjórnvalda. Að sama skapi er slíkt grundvöllur fyrir því að starf umboðsmanns og niðurstöður hans geti orðið þáttur í þinglegu eftirliti Alþingis með framkvæmdarvaldinu.“

Með bréfi Hönnu Birnu til umboðsmanns, 8. janúar 2015 hafi hún „þó bætt úr þeim annmarka sem ég tel vera á fyrri svörum [hennar]. Ég tek að síðustu fram að mál þetta hefði verið mun einfaldara í sniðum og ekki tekið þann tíma sem raunin varð, ef sú afstaða ráðherra, þar með talið til málsatvika, sem kemur fram í bréfinu frá 8. janúar 2015 hefði komið fyrr fram og þá sérstaklega þegar ég spurðist fyrir um málið í fyrstu. Ég beini þeim tilmælum til þess ráðherra sem nú fer með innanríkisráðuneytið að framvegis verði tekið mið af þeim sjónarmiðum sem eru rakin í álitinu um upplýsingagjöf til umboðsmanns. Þá vænti ég þess að stjórnvöld gæti almennt að þessum sjónarmiðum í framtíðarstörfum sínum.“

Gísli Freyr Valdórsson í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í forgrunni er Jóhann …
Gísli Freyr Valdórsson í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í forgrunni er Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður DV, sem mikið hefur fjallað um lekamálið undanfarin misseri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi innanríkisráðherra.
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis og Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi innanríkisráðherra.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert