Reyna að ræða við Dag á morgun

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri átti að vera gestur Kastljóssins í …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri átti að vera gestur Kastljóssins í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Kastljós féll niður í kvöld vegna tæknilegra örðugleika. Ræða átti við Dag B. Eggertsson borgarstjóra í þætti kvöldsins en önnur tilraun verður gerð annað kvöld.  

Dagur skrifar á Facebook-síðu sína í kvöld að hann hafi verið í einu eftirminnilegast Kastljós-viðtali sem hann hafi mætt í kvöld. 

„Hef lengi reynt að stytta mál mitt, en það hefur sjaldnast heppnast jafn vel og í kvöld. Það vantaði ekkert nema hljóð og mynd! Sjáumst hress annað kvöld,“ skrifar Dagur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert