Kannast ekki við andstöðu við EES

Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is

„Ég hef ekki orðið var við neina sérstaka andstöðu við samninginn í þingflokki Framsóknarflokksins,“ segir Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag vegna frétta í dag um að þingmönnum flokksins vildu einfalda regluverkið sem kæmi frá Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Segir samninginn hafa þjónað Íslendingum vel og ekki ástæða til að ætla annað en svo yrði áfram.

„Misskilningur virðist hins vegar vera - bæði innan flokks og utan - um innleiðingu reglugerða og tilskipana EES. Reglugerðir verður að innleiða í lög eins og þær koma - við höfum meira val með tilskipanir, en verðum að gæta þess að meginmarkmið þeirra skili sér. Það er rangt að Íslendingar geti ekki haft áhrif á það sem kemur frá ESB - við höfum hins vegar ekki sinnt því sem skyldi að koma að vinnu við gerð Evróputilskipana og hefur fjárskorti m.a. verið kennt um.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert