Hægviðri og bjart á köflum

Veðurhorfur á landinu næsta sólarhringinn samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands gera ráð fyrir norðanátt 2-8 metrum á sekúndu og snjókomu en annars hægviðri og björtu á köflum.

Hiti verður í kringum frostmark, en frost að 7 stigum í innsveitum í nótt. Gert er ráð fyrir hægum vindum framan af morgundeginum og víða bjartviðri. Gengur síðan í suðaustan 10-18 seinni partinn sunnan og vestanlands með snjókomu, slyddu eða rigningu en síðan hlýnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert