Ofbeldi gagnvart barni rannsakað

Frá Þórshöfn á Langanesi.
Frá Þórshöfn á Langanesi. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri rannsakar nú hvort brotið hafi verið gegn stúlkubarni á Þórshöfn á Langanesi í síðasta mánuði.

 Að sögn Gunnars Jóhannssonar, rannsóknarlögreglumanns, barst lögreglu ósk frá barnavernd Norðurþings um að rannsakað yrði hvort ungur maður hafi beitt stúlkubarn kynferðislegu ofbeldi.

Hann segir að rannsóknin sé á frumstigi og ekki hægt að segja frekar frá rannsókninni á þessari stundu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert