Flugvél í sjóinn við Mosfellsbæ

Maðurinn var einn í vélinni.
Maðurinn var einn í vélinni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Lítil flugvél fór í sjóinn við Langatanga í Mosfellsbæ nú fyrir stundu. Einn maður var í vélinni og komst hann úr henni og í land af sjálfsdáðum.

Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild en ekki er vitað um ástand hans.

Vélin hafnaði í sjónum fyrir neðan golfvöll Golfklúbbs Mosfellsbæjar, Hlíðavöll. 

Uppfært kl. 15.37

Rannsóknarnefnd flugslysa er á leið á vettvang. 

Hér má sjá vélina í sjónum.
Hér má sjá vélina í sjónum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. mbl.is/Hilmar
Hér má sjá flugvélina í sjónum.
Hér má sjá flugvélina í sjónum. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert