Stjórnvöld axli ábyrgð á stöðunni

Stjórn BSRB mótmælir harðlega lagasetningu á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér segir að verkfallsrétturinn sé grundvallarréttur launafólks og þann rétt beri að virða.

Augljóst sé að forsenda þess að kjaradeila félaganna og ríkisins leysist á farsælan hátt sé að um hana verði samið á jafnréttisgrundvelli við samningaborðið. Nú þegar hafi ákvæði í nýgerðum samningum á almennum markaði sett samningafrelsi opinberra starfsmanna hömlur.

„Á meðan samninganefnd ríkisins telur sig bundna af ákvæðum samninga á almenna markaðnum höldum við áfram að fjarlægjast þá norrænu aðferðafræði við kjarasamningsviðræður sem ríkið hefur þó lagt mikla áherslu á að hér verði tekin upp,“ segir í ályktuninni.

Þar segir jafnframt að lagasetning á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegi enn frekar að samningsrétti opinberra starfsmanna og veiki samningsstöðu félaganna til muna.

Stjórn BSRB krefst þess að stjórnvöld axli sína ábyrgð á þeirri alvarlegu stöðu sem nú er á vinnumarkaði og komi nú þegar fram með raunhæfar lausnir að samningaborðinu í stað þess að skýla sér á bak við samninga sem gerðir hafa verið á almenna markaðnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert