Eiga næga orku fyrir kísilverið

Unnið er af kappi við að reisa kísilver United Silicon …
Unnið er af kappi við að reisa kísilver United Silicon í Helguvík. Ljósmynd/Hilmar Bragi

Landsvirkjun hefur næga raforku til að standa við samninga við United Silicon um afhendingu raforku til kísilvers fyrirtækisins í Helguvík.

Er þá miðað við hvað kerfi fyrirtækisins ræður almennt við. Allir viðskiptavinir Landsvirkjunar fá afhent forgangsrafmagn en Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs, bendir um leið á í Morgunblaðinu í dag,  að ákveðinn sveigjanleiki sé til staðar til að minnka afhendingu, svo sem vegna slakrar vatnsstöðu eins og raunin hefur verið síðustu ár.

Fyrsti bræðsluofn United Silicon verður ræstur í maí. Hann þarf raforku sem svarar til 35 megawatta afls, samkvæmt raforkusölusamningi sem Landsvirkjun gerði við fyrirtækið á síðasta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert