Öxnadalsheiði lokað - versnandi veður

Öxnadalsheiði hefur verið lokað vegna ófærðar.
Öxnadalsheiði hefur verið lokað vegna ófærðar. mbl.is/Gúna

Veður fer mjög versnandi nánast í öllum landshlutum og vegir eru víða að verða ófærir. Fólk er eindregið beðið að vera ekki á ferðinni að sögn Vegagerðarinnar.

Lögreglan á Norðurlandi eystra vekur jafnframt athygli á því að veginum yfir Öxnadalsheiði hafi verið lokað vegna veðurs og ófærðar. Þar eru nokkrir bílar þegar fastir á heiðinni.

Björgunarsveitir verið kallaðar til úr Eyjafirði og Skagafirði til að koma þessu fólki sem fast er á heiðinni til aðstoðar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Hún hvetur þá sem hyggist leggja land undir fót að athuga vel með færð og veður áður en lagt er af stað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert