Áfram deilt um dómara í Aurum-máli

Frá aðalmeðferð Aurum-málsins í héraði í árið 2014.
Frá aðalmeðferð Aurum-málsins í héraði í árið 2014. mbl.is/Þórður

Sagan endalausa í kringum dómara í Aurum-holding málinu hélt áfram í dag þegar kröfu verjanda í málinu um að draga til baka innskiptingu héraðsdómarans Símonar Sigvaldasonar fyrir annan dómara, Arngrím Ísberg, var  hafnað af dómsformanninum Barböru Björnsdóttur. Þá var einnig deilt um hæfi sérfróðs meðdómara í málinu og ljóst að krafa um að hún víki verði sett fram innan skamms.

Til að rifja málið örlítið upp hefur áður verið dæmt í Aurum-holding málinu í héraði. Þar eru ákærðir þeir Lár­us Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, Jón Ásgeir Jó­hann­es­son, einn aðal­eig­andi bank­ans, Magnús Arn­ar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs, og Bjarni Jó­hann­es­son, fyrr­ver­andi viðskipta­stjóri. Þeim er gefið að sök umboðssvik eða hlut­deilt í umboðssvik­um vegna sex millj­arða króna lán­veit­ing­ar Glitn­is banka til fé­lags­ins FS38 í júlí 2008.

Í júní í fyrra, eftir aðalmeðferð sem teygðist yfir nokkra mánuði, voru ákærðu allir sýknaðir. Dómarinn Arngrímur skilaði þó séráliti þar sem hann vildi aðeins sýkna Bjarna, en sakfella Lárus, Magnús og Jón Ásgeir.

Mánuði síðar fór saksóknari fram á ómerkingu dómsins vegna ættartengsla sérfróðs meðdómara við Ólaf Ólafsson, sem hafði áður verið dæmdur af embætti sérstaks saksóknara. Féllst Hæstiréttur á það og þarf því að endurtaka málið í héraði.

Þar með var deilum um dómara þó ekki lokið, en saksóknari sagði Guðjón Marteinsson, dómsformann málsins, ekki vera óhlutdrægan í málinu. Var meðal annars vísað í viðtal við Guðjón eftir dóm Hæstaréttar og aðsenda grein í Fréttablaðið sem þó var aldrei birt. Að lokum komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að Guðjóni bæri að víkja í málinu og var Barbara Björnsdóttir skipuð dómsformaður. Þá var Arngrímur Ísberg tekinn af málinu og Símon Sigvaldason settur í staðinn. Skipaði Barbara svo Hrefnu Sigríði Briem, forstöðumann grunnnáms HR í viðskiptafræði, sem sérfróðan meðdómara.

Við dómþingið í dag sagði dómari að niðurstaða sín væri að hafna kröfu verjanda Bjarna um að Arngrímur kæmi aftur í dóminn. Kærði verjandinn þá niðurstöðu beint til Hæstaréttar sem mun væntanlega taka málið fyrir í næstu viku.

Í kjölfarið komu fram frekari vangaveltur varðandi næstu skref í málinu, en verjandi Jóns Ásgeirs segist munu kæra setu Símonar við dóminn ef Arngrímur verður ekki tekinn inn aftur. Sagðist hann þó bíða með það þangað til niðurstaða Hæstaréttar lægi fyrir.

Verjandi Lárusar hafði við síðustu fyrirtöku málsins látið bóka athugasemd sína um að víkja beri sérfróðum meðdómara málsins þar sem hún hefði ekki þá sérþekkingu sem þyrfti fyrir mál sem þetta. Dómari sagðist hafa tekið málið til skoðunar en að hún teldi ekki þurfa að gera breytingar á skipun dómsins. Sagðist verjandinn þá gera ráð fyrir því að lögð yrði fram formleg krafa innan skamms um að hún myndi víkja. Gera má ráð fyrir að niðurstaða þess muni einnig fara fyrir Hæstarétt.

Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð málsins hefjist 11. apríl á þessu ári og standi til 20. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert