Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur lagt fyrir Héraðsdóm Suðurlands kröfu um gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Vík í Mýrdal í gær grunaður um vinnumansal. Búist er við afstöðu dómara til kröfunnar síðar í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Rannsóknardeild og ákærusvið lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar mansalsteymis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.