Alvarleg hnífaárás átti sér stað í Vesturbænum um klukkan eitt í nótt.
Samkvæmt upplýsingum úr dagbók lögreglu var aðili stunginn með hnífi og var sá færður á bráðamóttöku til aðhlynningar.
Gerandinn var handtekinn nokkru síðar og vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Sjónarvottur tjáði mbl.is að hann hefði séð tvo menn takast á fyrir utan stúdentagarða við Sæmundargötu áður en lögregla mætti á vettvang og að svo hefði virst sem mikið blæddi úr baki annars þeirra.
Sjá fréttir mbl.is:
Þungt haldinn eftir hnífstungu
„Heyrðu strákur, það blæðir mjög mikið úr þér“