„Þetta er risastór ákvörðun“

Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari. Ljósmynd/Jón Baldvin Halldórsson

Bryn­dís Hlöðvers­dótt­ir rík­is­sátta­semj­ari er ekki búin að ákveða hvort hún bjóði sig fram til embættis forseta Íslands. Í samtali við mbl.is segir hún að stefnan sé að taka ákvörðun fyrir páska.

„Þetta er risastór ákvörðun og margir þættir sem þarf að fara yfir í þessu samhengi,“ segir Bryndís og bætir við að það þurfi að huga að mörgu áður en hún sé tilbúinn til að segja af eða á.

Hún segist jafnframt ekki vera búin að íhuga framboð að alvöru lengi, eða aðeins í um tíu daga.

Fyrri frétt mbl.is: Bryndís íhugar forsetaframboð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert