Ekkert áætlunarflug í nótt

Tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vakt á Keflavíkurflugvelli í nótt eru veikir og vegna yfirvinnubanns flugumverðarstjóra fást ekki menn í afleysingar. Því verður ekkert áætlunarflug um völlinn í nótt. Talið er að þetta muni hafa áhrif á um 24 flugferðir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

„Annars vegar er um að ræða miðnæturflug til og frá Evrópu og svo morgunflug frá Norður-Ameríku til Keflavíkurflugvallar og frá Keflavíkurflugvelli til Evrópu. Að auki mun þetta hafa umtalsverð áhrif til röskunar á áætlun flugfélaganna í framhaldinu,“ segir í tilkynningunni.

Öll þjónusta á vellinum verður takmörkuð við sjúkra- og neyðarflug.

„Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) og Samtök Atvinnulífsins (SA) fyrir hönd Isavia standa nú í kjaraviðræðum og hefur þeim verið vísað til ríkissáttasemjara. Viðræður hafa staðið yfir frá því í nóvember en síðustu átta fundir hafa verið haldnir undir stjórn Ríkissáttasemjara, sá síðasti 26. apríl síðastliðinn. Ríkissáttasemjari hefur boðað næsta fund 9. maí.

FÍF ákvað að setja á yfirvinnubann, en það hefur staðið yfir frá 6. apríl. Hingað til hefur það ekki haft mikil áhrif á áætlunarflug um íslenska flugvelli en þó nokkur áhrif á flug um íslenska flugstjórnarsvæðið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert