Hlupu í burtu frá vettvangi

Aðilarnir tveir sem voru í Honda Accord bifreiðinni hlupu af …
Aðilarnir tveir sem voru í Honda Accord bifreiðinni hlupu af vettvangi og skildu bílinn eftir. ljósmynd/Ófeigur Lýðsson

Tveir menn sem voru í bifreið sem ekið var aftan á aðra á Reykjanesbraut við Sprengisand í gærkvöldi hlupu í burtu frá vettvangi og fundust ekki þrátt fyrir mikla leit. Rannsókn málsins heldur áfram í dag samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 

Eins og fram hefur komið á mbl.is var tilkynnt um áreksturinn í gærkvöldi og voru tveir fluttir á slysadeild til aðhlynningar. Áreksturinn var nokkuð harður, en meiðsli voru nánast engin samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 

Frétt mbl.is: Tveir fluttir á slysadeild

Frétt mbl.is: Árekstur á Reykjanesbraut

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert