Árni Harðarson, stjórnarmaður og aðstoðarforstjóri samheitalyfjafyrirtækisins Alvogen er skattakóngur Íslands. Greiddi hann samtals 265.319.825 krónur í opinber gjöld samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkisskattstjóra, en þar er að finna lista yfir 20 hæstu gjaldendur.