Harma birtingu álagningarskráa

Blaðamenn fletta í gegnum álagningarskrárnar hjá ríkisskattstjóra. Myndin er úr …
Blaðamenn fletta í gegnum álagningarskrárnar hjá ríkisskattstjóra. Myndin er úr safni. mbl.is/Golli

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna harmar að álagningarskrár einstaklinga hafi enn eina ferðina verið bornar á borð fyrir hvern þann sem vill skoða. Um sé að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar um einkamálefni almennra borgara.

Í nýrri ályktun sambandsins segir að fjárhagsmálefni einstaklinga séu viðkvæmar persónuupplýsingar sem njóta verndar 71. gr. stjórnarskrárinnar. Það þurfi því að liggja gildar ástæður til grundvallar þeirri stefnu stjórnvalda að heimta þessar upplýsingar í krafti valds og leggja þær fram fyrir hvers manns augu.

Sú skýring að borgararnir eigi að hafa virkt eftirlit með skattgreiðslum nágranna síns geti vart talist grundvöllur slíkrar valdbeitingar, enda eigi skattaeftirlit að vera í höndum skattstjóra.

Þá verði jafnframt sú framkvæmd ríkisskattstjóra, að taka saman lista yfir þá skattgreiðendur sem eru með mestar skattgreiðslur og senda á fjölmiðla, að teljast í besta falli ámælisverð. Engin heimild sé fyrir slíkri framkvæmd í núgildandi lögum og verði hún ekki varin með vísan til langrar venju.

Ungir sjálfstæðismenn telja að birting skránna brjóti gegn stjórnarskrárvörðum rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs og sé með öllu óeðlileg. Hvetja þeir þingmenn og stjórnvöld til að standa vörð um friðhelgi einkalífsins og breyta lögum um framlagningu álagningarskráa, að því er fram kemur í ályktuninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert