Athugar ekki málsmeðferð Útlendingastofnunar

Útlendingastofnun segist hafa gert ýmsar umbætur á verkferlum sem tengjast …
Útlendingastofnun segist hafa gert ýmsar umbætur á verkferlum sem tengjast meðferð umsóknar um mannúðarleyfi vegna heilbrigðisástæðna. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Umboðsmaður Alþingis ætlar ekki að hefja frumkvæðisathugun á meðferð Útlendingastofnunar á umsóknum um landvistarleyfi af mannúðarástæðum á grundvelli heilbrigðisástæðna. Fjölmiðlaumfjöllun um brottflutning fjölskyldna með veik börn var umboðsmanni tilefni til að óska eftir upplýsingum frá stofnuninni.

Upplýsingaöflun umboðsmanns laut að því hvaða grundvöllur væri almennt lagður af hálfu Útlendingastofnunar í framangreindum málum og hvernig undirbúningi þeirra væri háttað. Var það gert til að leggja mat á hvort tilefni væri til að hefja frumkvæðismál, að því er segir í frétt á vef umboðsmanns Alþingis.

Eftir að hafa farið yfir svör Útlendingastofnunar og þau gögn sem var aflað í málinu átti umboðsmaður fund með starfsmönnum stofnunarinnar þar sem farið var yfir tiltekin atriði í framkvæmd þessara mála. Í framhaldinu bárust umboðsmanni frekari svör og gögn. Af hálfu Útlendingastofnunar var bæði lýst þeim umbótum sem höfðu verið gerðar í starfsemi stofnunarinnar að undanförnu og að ráðist hefði verið í vinnu til að fastmóta verklag við úrlausn mála varðandi dvalarleyfi á grundvelli heilbrigðisástæðna.

Frétt mbl.is: Flutt úr landi í skjóli nætur

Með hliðsjón af því var það niðurstaða umboðsmann að ekki væri tilefni til að hefja frumkvæðismál að svo stöddu. Í bréfi sínu til Útlendingastofnunar tók umboðsmaður þó fram að hann vænti þess að tekið yrði mið af þeim atriðum sem hann hefði vikið að á fundi sem hann átti með starfsmönnum stofnunarinnar og þeim almennu sjónarmiðum sem hann lýsti í bréfinu við þá vinnu sem nú væri í gangi hjá stofnuninni, m.a. við mótun verklags. Jafnframt tók hann fram að hann myndi fylgjast áfram með þessum málum og taka til frekari athugunar ef hann teldi ástæðu til.

Töluverða athygli vakti þegar hópi albanskra flóttamanna var vísað af landi brott í desember. Þeirra á meðal voru tvö langveik börn.

Frétt á vef umboðsmanns Alþingis um umsóknir um mannúðarleyfi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert