Sýknaðir af ákæru um hópnauðgun

Hæstiréttur íslands.
Hæstiréttur íslands. mbl.is/Þórður

Hæstiréttur hefur sýknað fimm pilta af ákæru um að hafa hópnauðgað 16 ára gamalli stúlku í maí árið 2014.

Pilt­arn­ir voru sýknaðir af ákærunní Héraðsdómi Reykja­vík­ur í nóv­em­ber á síðasta ári, en einn þeirra var þá dæmd­ur í þrjá­tíu daga skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir að mynda at­vikið.

Þá var hon­um einnig gert að greiða stúlk­unni 500 þúsund krón­ur í miska­bæt­ur auk vaxta.

Hæstiréttur vísaði hins vegar þeim hluta málsins aftur í hérað, sem snýr að myndbirtingu af atvikinu. mbl.is mun greina nánar frá málinu við birtingu dómsins síðar í dag.

Sjá frétt mbl.is: Hæstiréttur dæmir í hópnauðgunarmáli

At­vikið átti sér stað í íbúð í Breiðholti í Reykja­vík í maí árið 2014, en stúlk­an var þá 16 ára. Pilt­arn­ir hafa all­ir neitað sök frá upp­hafi, og hafa sagst talið stúlk­una hafa tekið þátt af fús­um og frjáls­um­vilja, í þeim kyn­ferðis­at­höfn­um sem átt hafi sér stað.

Framb­urður pilt­anna trú­verðugur

Héraðsdóm­ur komst að þeirri niður­stöðu að framb­urður pilt­anna væri trú­verðugur og að þeir hefðu hver og einn greint hrein­skiln­is­lega frá máls­at­vik­um. Ekk­ert hefði þá komið fram í mál­inu sem gæfi til kynna að þeir hefðu haft ástæðu til að ætla annað en að stúlk­an væri samþykk því sem fram hafi farið í her­berg­inu.

Frétt mbl.is: „Algjörlega venjulegt kynlíf“

Í dómi Héraðsdóms sagði stúlk­an að hún hefði gefið pilt­un­um til kynna að hún vildi ekki vera með þeim en ekki sagt það ber­um orðum. Síðar hafi hún sagt að hún gæti hafa sagt það ber­um orðum við pilt­ana en myndi það ekki.

Vísað til vitn­is­b­urðar þriggja vitna

Fram kom einnig í dómi Héraðsdóms að framb­urður stúlk­unn­ar hafi verið breyti­leg­ur um sum atriði og enn­frem­ur hafi komið fram í máli henn­ar að hún myndi sumt illa. Svo hafi virst sem hún hafi fyrst talað um nauðgun eft­ir að mynd­bands­upp­tök­una bar á góma.

Var þá meðal ann­ars vísað til vitn­is­b­urðar þriggja vitna í mál­inu um að stúlk­an hafi sagt að færi mynd­bandið í dreif­ingu myndi hún segja að um nauðgun hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert