Búast við „rólegum” fundi

Fyrsti fundur deiluaðila er hjá Ríkissáttasemjara í dag.
Fyrsti fundur deiluaðila er hjá Ríkissáttasemjara í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Fyrsti fundur er yfirleitt rólegur. Við förum yfir málið með sáttasemjara og vinnan verður kortlögð. Ég býst ekki við að það dragi til neinna tíðinda í dag,” segir Ólafur Loftsson formaður FG.

Fyrsti fundur í kjara­deilu Fé­lags grunn­skóla­kenn­ara og Sam­bands sveit­ar­fé­laga hjá Ríkissáttasemjara verður í dag kl. 13.30. Fyrir viku vísaði samn­inga­nefnd fé­lags grunn­skóla­kenn­ara deil­unni  til rík­is­sátta­semj­ara.

Ólafur reiknar ekki með að fyrsti fundur verði langur og segir að ef svo yrði kæmi það honum á óvart þar sem hann býst við að eingöngu verði farið yfir stöðuna. Hann bendir hins vegar á að þetta er fyrsti fundur deiluaðila undir stjórn nýs ríkissáttasemjara. 

Inga Rún Ólafsdóttir formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga tók í sama streng og Ólafur. „Við höldum áfram að vinna,“ segir Inga Rún. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert