Þakið við 70 þúsund kr. á ári

Þak er sett á kostnað fólks við heilbrigðisþjónustu, samkvæmt drögum að reglugerð sem velferðarráðuneytið hefur birt.

Almennir notendur munu greiða að hámarki 50 til 70 þúsund krónur á ári og börn, aldraðir og öryrkjar á bilinu 33 til 46 þúsund, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Í reglugerðinni, sem sett er samkvæmt lögum sem samþykkt voru í júní sl., er nákvæmlega kveðið á um gjaldskrár fyrir veitta heilbrigðisþjónustu.

Við innleiðingu á nýju kerfi munu greiðslur fólks fyrir heilbrigðisþjónustu mánuðina á undan reiknast til afsláttar. Kostnaðarþök í greiðsluþátttökukerfi sem reiknað er með að taki gildi 1. febrúar verða því 49.200 fyrir almennan notanda með fullan afslátt og 32.800 fyrir börn, aldraða og öryrkja með fullan afslátt. Almennur notandi þarf að greiða að hámarki 69.700 kr. á ári, fyrir heilbrigðisþjónustu sem lögin ná til, hafi hann ekki öðlast fullan afslátt og öryrkjar, aldraðir og börn 46.467 kr. að hámarki.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert