Farþegar í áætluðu innanlandsflugi Flugfélags Íslands næstu þrjá daga hafa verið látnir vita af þeim möguleika, að verkfall geti skollið á í fyrramálið. Þetta segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri félagsins, í samtali við mbl.is.
Hafa farþegarnir ýmist verið látnir vita með textaskilaboðum í síma eða tölvupósti, eftir þeim upplýsingum sem þeir gáfu upp við bókun.
„Við höfum undirbúið okkar farþega og látið þá vita af þessum möguleika, og boðið þeim valkosti til að bregðast við þessu.“
Þriggja daga verkfall hefst klukkan sex í fyrramálið, ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. Þá er einnig gert ráð fyrir ótímabundnu verkfalli, sem hefjast mun klukkan sex að morgni sjötta febrúar.
Fundur í kjaradeilunni hófst núna klukkan eitt. Spurður að lokum hvort menn séu vongóðir um að samningar takist svarar Árni:
„Á meðan menn eru að tala saman, þá er alltaf einhver von. Til þess eru samtölin.“