Vogar mótmæla vegtollum

Reykjanesbraut.
Reykjanesbraut. mbl.is/Golli

Bæjarstjórn sveitarfélagsins Voga mótmælir harðlega fyrirhuguðum aðgerðum samgönguráðherra, að leggja á vegatolla á Reykjanesbraut og aðrar stoðbrautir.

Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á fundi bæjarstjórnarinnar í kvöld.

Þar kemur fram að mikil mismunun felist í því ef íbúar á Reykjanesi þurfi að borga vegatolla við það að fara í vinnu en ekki íbúar höfuðborgarsvæðisins sem vinna á höfuðborgarsvæðinu.

„Það að rukka fólk um tolla sem sækir sína vinnu til að borga skatt til samfélagsins er ekki líðandi og gengur gegn jafnræði íbúa,“ segir í ályktuninni.

Vogar á Vatnsleysuströnd.
Vogar á Vatnsleysuströnd. mbl.is/Árni Sæberg

Ályktunin í heild sinni:

„Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga mótmælir harðlega fyrirhuguðum aðgerðum samgönguráðherra að leggja á vegatolla á Reykjanesbraut og aðrar stoðbrautir. Meirihluti íbúa Sveitarfélagsins Voga sækir vinnu bæði á höfuðborgarsvæðið og einnig til annarra sveitarfélaga á Reykjanesi, það yrði mikil mismunun að íbúar á Reykjanesi muni þurfa að borga vegatolla við það að fara í vinnu en ekki íbúar höfuðborgarsvæðisins sem vinna á höfuðborgarsvæðinu. Það að rukka fólk um tolla sem sækir sína vinnu til að borga skatt til samfélagsins er ekki líðandi og gengur gegn jafnræði íbúa. Búið er að tvöfalda Reykjanesbraut í landi Voga og mótmælir bæjarstjórn sveitarfélagsins því alfarið að íbúar þess þurfi að borga vegaframkvæmdir í öðrum landshlutum, nóg er borgað í dag í formi eldsneytisgjalds og bifreiðagjalda. Rétt er að benda samgönguráðherra á að Reykjanesbraut er fjölfarnasti vegur utan þéttbýlis og jafnframt hafa íbúar ekki annan raunhæfan valkost til að komast inn á höfuðborgarsvæðið og væru því nauðbeygðir til að greiða boðaðan vegtoll.

Einnig er vakin sérstök athygli á að á hinum Norðurlöndunum er veittur skattaafsláttur til þeirra sem sækja atvinnu um langan veg til jöfnunar á ferðakostnaði. Hér á Íslandi hefur ríkið hins vegar haft þá sem búa fjarri vinnustað sínum að féþúfu og nú er áformað að bæta enn við þann kostnað og auka á ójöfnuðinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert