Þrjár vikur til stefnu í máli Birnu

Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari.
Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Við erum bara með málið til meðferðar,“ segir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari í samtali við mbl.is. Í dag er ein vika liðin frá því að embættinu bárust gögn vegna hvarfs og and­láts Birnu Brjáns­dótt­ur og er málið nú til meðferðar hjá héraðssaksóknara. Embættið hefur því þrjár vikur til viðbótar til stefnu. Þegar sá tími er á enda þarf að vera búið að gefa út ákæru í málinu en þá rennur út 12 vikna gæsluvarðhald yfir manninum sem er í haldi vegna málsins.

Ólafur kveðst ekki geta tjáð sig um hversu langt í ferlinu málið er komið né þá hvort eða hvenær gefin verði út ákæra. „Við gefum í raun engar upplýsingar um það fyrr en það liggur fyrir,“ segir Ólafur. „Það var byrjað að vinna í þessu máli um leið og það kom og það er bara í ferli.“

Spurður hvort málið hafi forgang hjá embættinu fram yfir önnur mál sem þar eru til meðferðar segir Ólafur svo vera. Í raun sé það sjálfkrafa sökum þess stutta tímaramma sem er til stefnu.

„Það skapast í raun „automatískt“ ákveðinn forgangur á það sökum þess að viðkomandi er búinn að vera það lengi í gæslu og það er ekki hægt að halda honum nema í 12 vikur í gæslu nema það sé búið að gefa út ákæru í millitíðinni. Sú regla skapar náttúrlega sjálfkrafa ákveðinn forgang á málinu,“ útskýrir Ólafur, sem að öðru leyti getur ekki tjáð sig um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert