Danirnir Jeppe Hanssing og Michelle Lauge Quaade komu fyrst í mark í WOW Tour of Reykjavík hjólreiðakeppninni í dag. Hassings kom í mark á tímanum 3:10:10,0 klukkutímum og Quaade á 3:52:20,0 klukkutímum.
Fyrstu þrír keppendurnir í karlaflokki eru frá Danmörku. Nicolai Christensen hafnaði í öðru sæti og sigurvegarinn frá því í fyrra Tobias Mörch í þriðja sæti. Fyrsti Íslendingur í mark var Birkir Snær Ingvason úr hjólreiðafélaginu Tindi.
Þær Ágústa Edda Björnsdóttir og Erla Sigurlaug Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélaginu Tindi komu samhliða í mark í 2. og 3.sæti í kvennaflokki.