Ræða hvort ríkið komið að fráveitumálum við Mývatn

mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkisstjórnin fól í dag fjármála- og efnahagsráðuneyti og umhverfis- og auðlindaráðuneyti að ganga til viðræðna við sveitarstjórn Skútustaðahrepps um fráveitumál við Mývatn. 

Fráveitumál við Mývatn hafa verið í deiglunni um nokkra hríð. Kröfur eru gerðar í reglugerð til sveitarstjórnarinnar og rekstraraðila við Mývatn um ítarlega hreinsun á skólpi frá þéttbýli við vatnið og hefur sveitarfélagið skilað inn úrbótaáætlun með fyrirvara um fjármögnun og hugsanlega aðkomu ríkisvaldsins að henni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu.

Þar segir ennfremur, að umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafi látið gera verkfræðilega úttekt á úrbótum í fráveitumálum við Mývatn, sem kom út í mars á þessu ári. Samkvæmt henni gæti kostnaður við úrbætur á þéttbýlisstöðum við vatnið verið 700-880 milljónir króna.

„Almennt gildir sú regla að sveitarfélög bera ábyrgð á fráveitumálum og standa straum af kostnaði við framkvæmdir og rekstur með gjaldheimtu á íbúa og atvinnurekstur. Ljóst er hins vegar að aðstæður við Mývatn eru óvenjulegar, því þar eru gerðar strangari kröfur en almennt gerist og mikill þrýstingur um skjótar úrbætur. Svæðið nýtur sérstakrar verndar samkvæmt lögum og alþjóðlegrar verndar Ramsarsamningsins auk þess að vera afar fjölsóttur ferðamannastaður. Sveitarfélagið og fleiri hafa rökstutt ósk um aðkomu ríkisvaldsins með vísun í sanngirnissjónarmið, þar sem sveitarfélagið sé fámennt og eigi erfitt um vik að ráðast í dýrar framkvæmdir til að mæta ströngum kröfum, sem m.a. sé að finna í sérlögum um vernd svæðisins.

Samhliða viðræðum ríkisvaldsins og sveitarstjórnar Skútustaðahrepps mun umhverfis- og auðlindaráðuneytið efla vöktun á Mývatni og lífríki þess, einkum þá sem lýtur að innstreymi næringarefna og hugsanlegum neikvæðum áhrifum þess. 

Stefnt er að því að niðurstaða fáist í viðræðunum innan nokkurra mánaða,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert