Stjórnarskrárákvæði í samráðsgátt

Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráð Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á fundi formanna stjórnmálaflokkanna sem eiga sæti á  Alþingi var ákveðið fyrr í dag að afgreiða tvö frumvörp um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins Íslands til samráðs við almenning á samráðsgátt stjórnvalda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Annars vegar er um að ræða frumvarp um umhverfisvernd og hins vegar frumvarp um auðlindir í náttúru Íslands. Vinna við frumvörpin er komin á þann stað að rétt þykir að leita álits og athugasemda frá almenningi um efni þeirra, að því er segir í tilkynningunni.

Vakin er athygli á því að samráðsgátt stjórnvalda er einungis eitt af þeim verkfærum sem nýtt verða til samráðs við almenning í stjórnarskrárvinnunni en að auki mun fara fram skoðanakönnun og rökræðukönnun síðar á þessu ári.

Frumvörpin verða til umsagnar í samráðsgáttinni til 30. júní.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert