Dregið úr takmörkunum á samkomum og skólahaldi 4. maí

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á fundinum í …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra á fundinum í hádeginu. mbl.is/Árni Sæberg

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur greint frá ákvörðun sinni um tilslakanir á samkomum og skólahaldi, sem taka gildi 4. maí. Í þeim felst m.a. að opnað verður fyrir hefðbundið skólahald í leik- og grunnskólum, unnt að opna framhalds- og háskóla á ný með takmörkunum. Þá verða fjöldamörk samkomubanns hækkuð úr 20 í 50.

Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag, en þar kynntu forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra og dómsmálaráðherra næstu skref stjórnvalda vegna kórónuveirunnar. 

Svandís greindi enn fremur frá því, að heimilt verði að hefja á ný ýmsa þjónustu, s.s á hárgreiðslu-, nudd- og snyrtistofum. Þá geta tannlæknar tekið til starfa og söfn geta opnað á ný. Ákvörðun Svandísar er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. 

Slakað á takmörkunum í skrefum

Fram kemur í tilkynningu frá stjórnvöldum, að rúmlega 1.700 manns hafi greinst með COVID-19 hér á landi og rúmlega 100 manns hafi lagst inn á sjúkrahús af völdum sjúkdómsins. Fram kemur í minnisblaði sóttvarnalæknis til ráðherra að nýsmitum hafi farið fækkandi að undanförnu. Telja megi víst að faraldurinn sé í rénun hér á landi sem þakka megi víðtækum samfélagslegum aðgerðum sem gripið hafi verið til. Sóttvarnalæknir bendi á að samfélagslegt smit sé lítið eða innan við 1% samkvæmt sýnatökum Íslenskrar erfðagreiningar. Það þýði að ef slakað sé um of á gildandi takmörkunum skapist hætta að faraldurinn blossi upp aftur. Sóttvarnalæknir leggi því til að slakað verði í takmörkunum í skrefum sem verði endurskoðuð með þriggja til fjögurra vikna millibili. 

Helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi

Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal tveggja metra fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfssemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
  • Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
  • Snertingar óheimilar og halda skal tveimur metru á milli einstaklinga.


Nokkur atriði sem haldast óbreytt:

  • Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
  • Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
  • Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
  • Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
  • Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir haldast óbreytt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert