Einfalt að afstýra verkfalli Eflingar

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir lausnina í kjaradeilunni vera að …
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir lausnina í kjaradeilunni vera að semja um sömu kjör og samið var um við Reykjavíkurborg. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eins og staðan er núna þá bendir ekkert til þess að yfirvofandi verkfallsaðgerðum félagsmanna Eflingar í Kópavogi, á Seltjarnarnesi og fleiri sveitarfélögum verði aflýst áður en það hefst á þriðjudaginn segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, í samtali við mbl.is.

Síðasti fundur samninganefndar Eflingar og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram á fimmtudaginn í húsakynnum ríkissáttasemjara en hann bar ekki árangur. Næsti fundur hefur verið boðaður á morgun.

Verk­fallið er boðað hjá Kópa­vogs­bæ, Seltjarn­ar­nes­bæ, Mos­fells­bæ, Hvera­gerðisbæ og Sveit­ar­fé­lag­inu Ölfusi. Það hefst á hádegi þriðjudaginn 5. maí, daginn eftir að samfélagstakmarkanir verða rýmkaðar og skólahald getur hafist aftur á eðlilegan hátt.

Verkfallið mun taka til fólks sem sér um ræstingar í fjórum af 21 leikskóla og fjórum af níu grunnskólum í Kópavogi og ljóst þykir að þeir munu þurfa að loka fljótlega aftur eftir að eðlilegt skólahald hefst. Verkfallið hófst í síðasta mánuði en var frestað í tvær vikur vegna kórónuveirufaraldursins.

Eru ágætlega bjartsýn á farsæla lausn

Efling krefst þess að fá sams kon­ar samn­ing og fé­lagið gerði við Reykja­vík­ur­borg, fyr­ir sömu störf. Efling hefur einnig náð fram sambærilegri leiðréttingu í samningum við ríkið og Faxflóahafnir. Samn­inga­nefnd Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga býður sama samn­ing og samið hef­ur verið um við Starfsgreinasamband Íslands.

Viðar segir engar vísbendingar hafa komið fram um það frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga að samningsaðilar séu að þokast nær samningi og það sé erfitt að sjá fyrir að verkfallinu verði aflýst áður en það hefst.

„En við bindum vonir við það að það náist saman. Það er fundur á morgun hjá ríkissáttasemjara og það er mjög einfalt að klára þetta mál á sömu forsendum og gert var gagnvart ríkinu, borginni og Faxaflóahöfnum. Spurningin er bara um ákvörðun hjá hinum aðilanum,“ segir hann. 

Þætti merkilegt ef þingmenn myndu setja lög á verkfallið

Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur látið hafa það eftir sér að fyrirhugað verkfall sé óskiljanlegt og telur að það þurfi jafnvel að setja lög á verkfallið.

„Mér þætti það merkilegt ef að þingmenn sem voru að skaffa sjálfum sér afturvirkar launahækkanir langt umfram lífskjarasamninginn ætluðu að fara setja lög á kjarabaráttu láglaunafólks á þessum tímapunkti,“ segir Viðar spurður um ummæli Aldísar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert